Skilmálar

Skilareglur HEGAS

Almennur skilaréttur er 30 dagar frá dagsetningu reiknings. Vara verður að vera í upprunalegum umbúðum, hrein og ónotuð. Koma þarf með upprunalegan reikning.

Lakk og bæs ásamt sérsniðnum og niðurklipptum vörum hafa ekki skilarétt. Sérpantaðar vörur og tilboðsvörur hafa sömuleiðis ekki skilarétt.

Afhendingar

Um vörur sem dreift er af flutningsaðilum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar viðskomandi flutningsaðila um afhendingu vörunnar.

Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er afhent frá HEGAS til flutningsaðila og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila. 

Endurgreiðsla

Vörur sem keyptar eru í netverslun og sendar til kaupanda, er hægt að fá endurgreiddar. Kaupandi hefur 7 daga til að fara fram á endurgreiðslu, að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu ástandi, í upprunalegum umbúðum og innsigli ekki rofið sé það til staðar. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Ef senda þarf vöru til baka vegna vöruskila, þá stendur kaupandi straum af þeim sendingarkostnaði.

Verð á þessari síðu

Öll verð í netverslun innihalda virðisaukaskatt og eru í íslenskum krónum. Verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Tilboð gilda í sumum tilfellum eingöngu fyrir netverslun.

Persónuvernd:

Farið er með allar persónuupplýsingar sem HEGAS móttekur sem trúnaðarmál og þær aðeins nýttar í þeim tilgangi að klára viðskiptafærslu. Kaupanda gefst hins vegar kostur á að fá send tilboð í tölvupósti og mun seljandi þá aðeins nota þær upplýsingar sem til þess þarf s.s. póstfang nema annað sé sérstaklega tekið fram.

Úrlausn vafamála

Ávallt skal reyna að leysa öll mál á sem einfaldastan hátt. Ef það er ekki mögulegt er hægt að bera málið undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárskaupa sem hýst er af Neytendastofu. Sem síðasta úrræði er hægt að fara með málið fyrir dómstóla. Það skal gera í íslenskri lögsögu og í lögsagnarumdæmi seljanda .

Þjónusta og upplýsingar

Kaupanda er bent á að senda okkur skilaboð með öllum þeim upplýsingum er varða kaupin, í gegnum vefsíðu okkar, til að fá úrlausn á því sem hann vantar. Kaupandi getur einnig leitað í verslun okkar á Smiðjuvegi 1 til að fá svör en í einhverjum tilfellum kann að vera betra að hringja í símanúmer okkar 5806700 þar sem erindin verður vísað á réttan stað hjá okkur.

Annað:

HEGAS tekur ekki ábyrgð á röngum verðum sem kunna að vera inná vefsíðunni. HEGAS áskilur sér rétt til þess að hætta við pöntun komi í ljós að varan hafi verið vitlaust verðmerkt.

Skilmálar uppfærðir: 28.01.2024

Shopping Cart
Scroll to Top